Þann 9. og 10. maí nk. standa Rannís og Félag rannsóknastjóra fyrir námskeiði um hvernig skrifa eigi árangursríkar umsóknir í Marie Curie áætlun Horizon Europe.
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu reglur, matsferli og önnur grundvallaratriði við skrif umsókna í MSCA áætlunina. Náskeiðið stendur frá 9:00-17:00 báða dagana.
Námskeiðið fer frá á ensku og er ætlað umsækjendum, verkefnastjórum, jafnt sem rannsóknastjórum og öðrum sem hafa áhuga á að bæta færni sína í að skrifa samkeppnishæfa umsókn í MSCA áætlun Horizon Europe.
Leiðbeinandi er Jitka Erylmaz sérfræðingur hjá EFMC með áherslur á MSCA prógrammið
Hámarksfjöldi þátttakenda er 30
Staður: Reykjavik Edition Hótelið, Austurbakka 2, 101 Reykjavík
Námskeiðsgjald: 80.000, félagar í Félagi rannsóknastjóra greiða 65.000 kr.
Innifalið námskeiðsgögn, hádegismatur og kaffiveitingar.