IceArma
— félag sérfræðinga í rannsóknaþjónustu

IceArma
— Félag sérfræðinga í rannsóknaþjónustu
Um okkur
IceArma vinnur að því að efla og styðja við rannsóknastarf á Íslandi. Við tengjum saman fræðafólk, rannsakendur og stjórnendur til að stuðla að betri nýtingu þekkingar og hagnýtingu rannsókna á landsvísu og alþjóðavísu. IceArma leggur áherslu á að veita stuðning við þá sem hafa faglega hagsmuni í rannsóknum, stjórnsýslu og verkefnastjórnun.
IceArma starfar í nánd við fræðasamfélagið, rannsóknastofnanir, fyrirtæki og stjórnsýslu til að skapa tækifæri fyrir nýjar rannsóknir og þróun á öllum sviðum samfélagsins. Meðlimir okkar hafa aðgang að fjölbreyttum úrræðum og fræðslu sem nýtast til að efla faglega færni og skapa nýjar tengingar við samstarfsaðila bæði innanlands og utan.
Vilt þú gerast meðlimur?
Ert þú rannsóknastjóri eða sérfræðingur í rannsóknaþjónustu?
Ef svo er, þá hefur þú e.t.v. rétt á að gerast meðlimur IceArma!
Meðlimir hafa atkvæðisrétt innan félagsins og taka því virkan þátt í að móta starf og stefnu þess.

Markmið
& stefna
Markmið IceArma eru að:
— Rannsóknastjórar deili með sér þekkingu
— Halda sameiginleg námskeið fyrir rannsóknastjóra
— Auka vægi rannsóknastjóra sem einnar heildar í rannsóknaumhverfinu
— Nýta mátt fjöldans ef þrýsta þarf á „kerfið“
— Taka þátt í norrænu, evrópsku og alþjóðlegu samstarfi rannsóknastjóra
Félagið var stofnað 19. nóvember 2012.

Skráðu þig á póstlistann
Fáðu tölvupóst með nýjustu fréttum af starfi okkar og viðburðum