Aðalfundur ICEARMA – Félag sérfræðinga í rannsóknarþjónustu

Stjórn ICEARMA boðar hér með til aðalfundar félagsins miðvikudaginn 3. desember 2026.

Staður: Rannís, Borgartúni 30, 3. hæð
Tími: Kl. 15:00-17:00, léttar veitingar í boði eftir fund

Dagskrá aðalfundar

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar lögð fram
  3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
  4. Lagabreytingar
  5. Ákvörðun félagsgjalds
  6. Kosning stjórnar
  7. Önnur mál

Erindi og kynningar

  • Horizon Europe 2028-2034: staða mála
    Úlfar Gíslason, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið (15 mín.)
  • Erlent rannsóknarsamstarf og þjóðaröryggi
    Hvernig getur alþjóðlegt rannsóknarsamstarf í ákveðnum tilvikum haft áhrif á þjóðaröryggi?
    Fulltrúi frá Greiningardeild ríkislögreglustjóra (15 mín.)
  • Þekkingaryfirfærsla rannsókna: Af hverju skiptir hún máli og hvar liggja tækifærin?
    Ingunn Sigurpálsdóttir, framkvæmdastjóri Auðnu og Sigrún Ólafsdóttir, teymisstjóri Horizon Europe teymisins hjá Rannís (15-20 mín.)

Streymi fundarins

Boðið verður upp á streymi fyrir þá sem ekki eiga heimangengt.  Vinsamlegast merki við í skráningarformi svo hægt sé að senda út fundarlink fyrir fundinn.

Veitingar

Að fundi loknum verður boðið upp á léttar veitingar og gefst fundargestum tækifæri til að eiga notalega stund saman.

Við hlökkum til að sjá ykkur á fundinum og hvetjum félagsfólk jafnframt til að íhuga framboð til stjórnar og taka virkan þátt í starfi félagsins á komandi starfsári.

Vinsamlegast skráið þátttöku hér.

Stjórn ICEARMA