Stjórn ICEARMA boðar hér með til aðalfundar félagsins miðvikudaginn 3. desember 2026.
Staður: Rannís, Borgartúni 30, 3. hæð
Tími: Kl. 15:00-17:00, léttar veitingar í boði eftir fund
Dagskrá aðalfundar
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Reikningar lagðir fram til samþykktar
- Lagabreytingar
- Ákvörðun félagsgjalds
- Kosning stjórnar
- Önnur mál
Erindi og kynningar
- Horizon Europe 2028-2034: staða mála
Úlfar Gíslason, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið (15 mín.) - Erlent rannsóknarsamstarf og þjóðaröryggi
Hvernig getur alþjóðlegt rannsóknarsamstarf í ákveðnum tilvikum haft áhrif á þjóðaröryggi?
Fulltrúi frá Greiningardeild ríkislögreglustjóra (15 mín.) - Þekkingaryfirfærsla rannsókna: Af hverju skiptir hún máli og hvar liggja tækifærin?
Ingunn Sigurpálsdóttir, framkvæmdastjóri Auðnu og Sigrún Ólafsdóttir, teymisstjóri Horizon Europe teymisins hjá Rannís (15-20 mín.)
Streymi fundarins
Boðið verður upp á streymi fyrir þá sem ekki eiga heimangengt. Vinsamlegast merki við í skráningarformi svo hægt sé að senda út fundarlink fyrir fundinn.
Veitingar
Að fundi loknum verður boðið upp á léttar veitingar og gefst fundargestum tækifæri til að eiga notalega stund saman.
Við hlökkum til að sjá ykkur á fundinum og hvetjum félagsfólk jafnframt til að íhuga framboð til stjórnar og taka virkan þátt í starfi félagsins á komandi starfsári.
Vinsamlegast skráið þátttöku hér.
Stjórn ICEARMA