Kæra ICEARMA félagar
Við viljum vekja athygli ykkar á rafrænum kynningarfundi um möguleika íslenskra aðila til þátttöku í verkefnum á vegum Uppbyggingarsjóðs EES á nýju sjóðstímabili. Við viljum einnig vekja athygli á því að í þessari nýju áætlun er mun meira fjármagn sett í rannsóknir fyrir alla þátttakendur en í fyrri áætlunum.
Fundurinn verður haldinn á TEAMS föstudaginn 17. apríl kl. 9.00-10.00. (Skráðir þátttakendur fá sendan hlekk daginn áður).
Markmið kynningarfundarsins er að miðla nýjum upplýsingum um áætlanir sjóðsins. Markhópur fundarins eru allir sem hafa áhuga á að taka þátt í umsóknum á vegum Uppbyggingarsjóðs EES á öllum áætlunarsviðum. Öll köll sem birt verða á vegum sjóðsins má nálgast á erlendri vefsíðu Uppbyggingarsjóðs EES.
Rannís mun hafa umsjón með eftirfarandi áætlunum í sjö löndum:
Pólland (Grunnrannsóknir, Hagnýtar rannsóknir, Græn umskipti og Menning)
Portúgal (Bláa hagkerfið og Menning)
Tékkland (Hagnýtar rannsóknir og nýsköpun og Menning)
Rúmenía (Rannsóknir og nýsköpun og Hrein orkuskipti)
Búlgaría (Staðbundin þróun)
Króatía (Græn umbreyting)
Slóvakía (Menningardrifin staðbundin þróun)
En einnig er hægt að taka þátt í verkefnum í hinum löndum áætlunarinnar þ.e. Grikklandi, Eistlandi, Kýpur, Lettlandi, Litháen, Möltu, Slóveníu og Ungverjalandi. Á kynningarfundinum verður farið yfir stöðuna á nýja tímabilinu og þau tækifæri sem eru framundan.
Nánar upplýsingar um dagskrá og hlekkur á skráningarform er á vefsíðu Rannís:
__
Dear ICEARMA colleagues
We would like to draw your attention to an electronic briefing on the possibilities for Icelandic parties to participate in projects under the EEA Reconstruction Fund in the new funding period. We would also like to draw your attention to the fact that in this new programme much more funding is allocated to research for all participants than in previous programmes.
The meeting will be held at TEAMS on Friday 17 April at 9.00-10.00. (Registered participants will receive a link the day before).
The aim of the briefing is to share new information about the fund’s programmes. The target group of the meeting is everyone who is interested in participating in applications under the EEA Reconstruction Fund in all programme areas. All calls that will be published under the fund can be accessed on the EEA Reconstruction Fund’s foreign website.
Rannís will manage the following programmes in seven countries:
Poland (Basic Research, Applied Research, Green Transition and Culture)
Portugal (Blue Economy and Culture)
Czech Republic (Applied Research and Innovation and Culture)
Romania (Research and Innovation and Clean Energy Transition)
Bulgaria (Local Development)
Croatia (Green Transition)
Slovakia (Culture-Driven Local Development)
However, it is also possible to participate in projects in the other countries of the programme, i.e. Greece, Estonia, Cyprus, Latvia, Lithuania, Malta, Slovenia and Hungary. The briefing will review the status of the new period and the opportunities that lie ahead.
More information about the programme and a link to the registration form can be found on the Rannís website.
Sincerely,
The board of ICEARMA