Rannís og Félag rannsóknastjóra á Íslandi bjóða til hádegisverðarmálþings í tilefni af 10 ára afmæli Evrópska rannsóknaráðsins (ERC) föstudaginn 5. maí kl. 12:00 – 14:30 á Grand Hótel Reykjavík.
DAGSKRÁ
- 12:00
Skráning og borðhald hefst - 12:15
Íslenskir ERC-styrkþegar, myndband fyrri hluti - 12:25
Ísland, vísindin og umheimurinn
Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís, fjallar um árangur Íslands í alþjóðlegu samstarfi - 12:45
ERC í 10 ár, árangur og þátttaka Íslands
Michel Vanbiervliet, fulltrúi Evrópusambandsins - 13:15
Íslenskir ERC-styrkþegar segja frá verkefnum sínum og reynslu af því að sækja um styrk
Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor við Háskólann í Reykjavík
Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands
Sigurður Yngvi Kristinsson, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands - 14:00
Horft til framtíðar, myndband seinni hluti - 14:10
Hvernig er hægt að styðja við framúrskarandi vísindamenn sem hafa hug á að sækja um í ERC?
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
Fundarstjóri er Ragnheiður H. Magnúsdóttir, formaður tækninefndar Vísinda- og tækniráðs og viðskiptastjóri hjá Marel.
Hádegisverður í boði Rannís og Félags rannsóknastjóra á Íslandi.
https://www.rannis.is/frettir/stefnumot-vid-visindin